5.12.2008 | 19:19
Íslendingar eru heimskir
Að hugsa sér, að íslendingar skuli láta plata sig aftur, aftur og aftur, BT sem búið er að taka íslendinga í rassinn í mörg ár hefur opnað aftur af sömu eigendum og áttu það fyrir nokkrum árum,
BT auglýsir RUGLVERÐ, enda verðið og þjónustan alltaf verið í rugli hjá þeim og hefur ekki og mun ekki batna.
En BT er eitt af þessum fyrirtækjum sem farið hafa í gegnum skilvindu hins íslenska fjármálalífs, sem mergsýgur og skilur fyrirtæki eftir gjaldþrota svo hægt sé að endurreisa það á núlli og byrja aftur á vitleysunni.
BT er ónýtt nafn og BT-músin holdgerfingur slæmrar þjónustu.
Ég mæli með að Íslendingar hætti að láta hafa sig að fíflum. Lærum af reynslunni.
![]() |
Lífhrædd á íslenskri útsölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Á meðan merin jarmar um stórkostlegt flóð af fólki inn í búðina er ekki kjaftur fyrir aftan hana í mynd.
einar (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.